~*Góðan dag!*~
17.01.2007 20:44:41 / alla

svara??

1. Myndir þú fara í bíó með mér ?

2. Myndirðu lána mér pening?

3. Myndirðu tala við mig á msn?

4. Myndirðu nota mig í eitthvað hættulegt?

5. Myndirðu fara með mér ball og dansa við mig?

6. Myndirðu segja símanúmerið þitt við mig?

7. Myndirðu halda framhjá mér?

8. Myndirðu vaska upp og þvo fötin eftir mig?

9. Hvað myndum við helst gera þegar við erum ein saman?

10. Myndirðu segja mér upp ef ég væri fátæk?

11. Myndir þú elda góðan mat fyrir mig?

12. Af hverju varstu að svara þessu spurningum?

13. Ætlar þú að setja þetta á þína síðu svo að ég geti svarað spurningunum?


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 14:09:46 / alla

ég er líka cool!

SKO!!! ég er komin í hóp fólksins með myspace.. svo núna er ég líka töff:D

www.myspace.com/allamalla

get samt ekki sagt að ég kunni mikið á þetta:P


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 23:35:09 / alla

JólaJóla

wáwáwáwáwá hvað ég hlaaaakkaaaaa til JÓLANNA!!!!
Það verða nú örugglega ekki mörg jólin sem ég er ekki að vinna eða í skóla svo eins gott að maður verði duglegur í jólaundirbúningnum þetta árið. Ég er líka alveg handviss um það að dóttir mín hún Nadía Ósk verði alger jólaálfur! :D (eða eins gott að hún verði það;) ) Enda er ég dugleg að láta hana hlusta á jólalögin með mér;) Síðan fékk hún líka súkkulaðidagatal sem hún elskar, því það er svo flott, en mamma og pabbi hjálpa að borða það allavana eins og er;)

Planið fyrir jólaundirbúning ætti að hljóða þannig:

  • gera fullt fullt fullt af jólakortum (helst meira en í fyrra sem voru um 100stk) ;)
  • gera allt klárt til að ná fjölskyldunni saman í jólabakstur.. erum með afbragðshugmynd sem verður að gerast=)
  • skreyta skreyta og skreyta meira bæði hjá okkur Gumma og heima í Breiðó
  • JÓLAHREINGERNINGU (sama hvort það sé hér eða í breiðó)
  • ooggg get eiginlega ekki skrifað meir því það er leyndó:P hehe

sem BETUR fer þá er jóladressið fundið á meðlimi fjölskyldunnar minnar=) það er mikill léttir en unga daman á heimilinu fékk GEÐVEIKA kjóla frá ameríku sem frænka hennar keypti. Þeir eru alveg geggjaðir og ég er ÁSTFANGIN:D ásam sokkum, hárbandi sem er líka alveg geggjað og litlum slaufum með svona "frönskum rennilás" (get bara enganvegin munað hvað þetta heitir).

Annað í fréttum er að við "gömlu hjónin" skelltum okkur á Rock Star:D Þá fyrst var ég himinlifandi að Lukas vann þáttinn því ég hefði enganveginn nennt að hlusta á hann þarna. En þau voru alveg geggjuð og ég er mjöög sátt við að hafa farið:D ( þó að maður var búin að fá sér kannski örlítið of mikið í litlu táslu)

æj jæj jæj er farin að glápa á Stevie í Rositu ;oÞ og éta ógó gott túnfisksalat sem ég er mjög hreykin af;)

seeee yahhh


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 22:17:45 / alla

Pisssaaaa...... neiiiii

Kúúúkaaaa!!!!!!!!!!! Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir. Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum. Ellikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira. Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag. Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti. Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa. Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni. Maískúkur: Skýrir sig sjálfur. Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar. Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum. Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni. Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og rassgatið á þér með. Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki. Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en...úps - sparð. Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig ve Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir. Long John Silver: Svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa... Múhahahahahaaaa............... >:-) Heví stelpukvöld með allra bestustu stelpunum... Kata og Jóhanna EEEEELLLLLSSSSSKKKKKAAAAAAA YKKKKKKKKKKKUUUUUUURRRRRR!!!!!!!! :*:*:*;*

» 5 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 01:38:31 / alla

hahaha.... OJ

Það var í gæsapartýi verðandi brúðar, kvöldið fyrir giftingu. Inn í veisluna kemur strákur. Þau eru stödd í eldhúsinu og "gæsin" nokkuð hífuð gengur að honum og hvíslar. "Mig langar að sofa hjá þér, þetta er síðasti séns, komdu upp og vertu með smokk með þér." Hún fer síðan út úr eldhúsinu og strák er brugðið. Hann er ekki með smokk á sér, en ísskápurinn er opinn og hann sér bjúga í skápnum. Hann tekur bjúgað og afhýðir það og fer síðan upp. Þar er "gæsin" tilbúin og hann notar hýðið, en í hita leiksins rennur það fram af og þjappast þar. Ungi maðurinn segir ekkert. Á brúðkaupsnóttina þegar brúðhjónin eru komin á fullt finnur brúðguminn fyrir einhverju inni í henni. Hann stoppar, þreifar með fingri og tekur hýðið út og virðir það fyrir sér. Hann: "Hvað er þetta?" Hún: "Ætli þetta sé ekki meyjarhaftið mitt!" Hann: "Við erum svei mér heppin. Síðasti söludagur er á morgun!"

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 23:46:03 / alla

hvað er að skeee???

Sælar,

djíses kræst.. á ekki eitt einasta orð en hvað er málið með að vera mála litlar og sætar stelpur fyrir auglýsingar??? og gera einhverja svaka töffara hárgreiðslu með túbu að geli í litlu sætu strákana!!!!!

ég meina það eru takmörk fyrir öllu eins og að mála litla krakka fyrir leiksýningar, balletsýningar eða eitthvað þessháttar sem þau eru að taka þátt í.. en að setja maskara og gloss og svoleiðis?!?!?! KRÆST!!! ekki finnst mér börnin þurfa þess!!

ALLVANA!!!!

Styttist í danmerkurferðina:D wíwíwí=) það verður skoh gaman:D
Á laugardaginn ætlum við að hafa algjört stelpukvöld með mat, potti og fíneríi=) sem bleikur sykurpúði mun standa af!! klapp klapp!! *hipphipphúrrey*:haha: Hlakka geggjað til nema auðvitað þarf Keitý að vinna þessa helgi:( en þetta verður nú ekki í síðasta sinn.
Helgina eftir er það bara -!danmörk baby!- 8)

Laugardeginum eftir þegar við komum heim þá er reyndar alveg fullt að gerast og hver veit nema Nadía fái smá mömmufrí til að leifa henni að kíkja á afmælisveislurnar sem verða væntanlega.

Hitti Örnu mína í dag:) æðislegt að hittana loksins aftur:* verst hvað ég gat stoppað stutt hjá henni því ég þurfti víst að mæta til doksa... sem var btw svaka fjör... Gummi og Nadía komu með mér og þurftum við að bíða í KLUKKUTÍMA!! shizer síðan þegar ég var ein eftir sá læknirinn mig loksins og bara æj fyrirgefðu.. sá bara barnið og hélt þið væruð að koma með það!! úff.. nú jæja.. honum var fyrirgefið.. bara sem betur fer var ég ekki ein heldur með elskurnar mínar:*

OG síðan er ég búin að lofa mér að fara hafa samband við ákveðna aðila!!! sem ég skammast mín rosa fyrir að vera ekki búin að gera=s :^) Arnan mín var ein af þeim, sem og Lexa.. þannig þetta er nú að koma:)

Er hætt að rausa í bili.... komið nú með einhver komment þið sem kíkjið:)

nokkrar gamlar og góðar í lokin:*



HAHAHAHA.... SÆKÓ!!!

Alla og Lexí.. myndin sem mig langaði að setja... haha ekki alveg....

fyrir Skíðaferðina FRÁBÆRU!!!!

SEXY!!! hahah

OG BESTA MYND í GEYMI!!!!! ELSKURNAR:*

- kveð að sinni


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 21:25:19 / alla

Sveitasæla...:)

Sælar,

eftir allt stressið í kringum skírnina skelltum við litla fjölskyldan okkur í sumarbústað með Sigga pabba Gumma og Möggu.. Eða tróðum okkur svona hálfpartin uppá þau:P hehe... En Nadía mín er svo ÆÐISLEG!!!! að í hvert skipti sem við skelltum okkur í pottin svaf hún eins og steinn á meðan eða lá og lék sér hljóðalaust í vagninum:)
Algjört óskabarn þessa sæta elska:*

En eftir þriggja daga letilíf í sveitinni fór Nadía í pössun til múttu og við Gummi fórum í afmæli til Jóns. Síðan um kvöldið skelltum við Jóhanna okkur á Glaumbar! Geggjað stuð þó það hafi vantað Kötu:( sem er nýkomin út hálskirtlatöku:S
Hittum þar Lexu sem er aldaraðir frá því ég hitti síðast! en mjög gaman að hittana:D Litla mellan nýbúin að vera í myndatöku fyrir Nikita og fékk *slef* flott föt:D

Annars verður kvöldið rólegt..... maður orðin svo gömul! hehe

myndir af elsku fallegu prinsessunni minni í lokin... =)

- þangað til næst


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 20:46:02 / alla

Hrossasleikja... nei takk!!!

Sælar,

Þá er búið að skíra litlu sætu prinsessuna okkar Gumma!! Skírnin fór fram heima hjá okkur og um 50 manns mættu og fylgdust með. Heppnaðist mjög vel held ég barasta:)
Nadía var eins og engill frá upphafi til enda:) Eftir veisluna var svo lítið teiti hérna heima og um kvöldið komu stelpurnar mínar.. Kata, Jóhanna, Ragga, Gugga ásamt Eika og Sindra:D Síðan var bara haldið í bæinn ásamt tengdó, Svövu og Árna sem voru líka:) og Gumma auðvitað því Hrafnhildur var svo elskuleg að passa fyrir okkur c´,) Nadía vildi auðvitað að foreldra sínir myndu skemmta sér og svaf eins og steinn allan tíman og gott betur en það8)

Nú fer að styttast í ferðinna okkar til Köben..!!! Okkur Jóhönnu hlakkar rosa til og er ekki frá því að Nadía bíði spennt líka;)

Á mánudaginn eftir viku verður hann Eskil minn EINS ÁRS!!! Wá hvað tíminn líður hratt á gervihnattaöld!!! :!: Finnst svo stutt síðan að mamma hringdi í mig og sagði að barn væri fætt:haha:


Eskil sem bráðum verður 1. árs!!

-Takk fyrir mig


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 00:31:33 / alla

Obb bobb boj!!

Sælar,

vá hvað ég á erfitt með að trúa því að eftir 6 daga verður prinsessan mín skírð!!! Hún er líka orðin svo stór!! hehe.. en samt pínulítil:D

Við Gummi fórum með börnin okkar Nadíu og Odd í IKEA um daginn! vvvvvvvvvvááááááááááááá!!!!!!!!!!!! stórrrrrrrt!!!!!!!!!! En alveg ÆÐI!!!!!:D hlakka til að geta verslað þarna í framtíðinni:P hehe

Ég og Nadía hittum líka Döggu, Kötlu, Eskil, Unni og Júlíu Önju á föstudaginn sem var mjög gaman:) Síðan um kvöldið ætluðum við stelpurnar að hafa bara okkur þrjár í mat en þá varð Kata lasin:/ Hún kom reyndar til okkar og varð í smá tíma... síðan komu nokkrir... síðan fórum við í bæinn... síðan vorum við orðin þreytt og fórum heim! ÓGEÐSLEGUR leigubílstjóri!!! *hrollur* djí hvað ég var hrædd við hann:( perralegur og leiðinlegur!!! ætti að banna þannig taxi-gaura!!!

Jæja.. bless í bili.... =)


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 22:13:48 / alla

smá líf...

Sælar,

já það var rétt! ég á mér víst eitthvað smá líf þar sem maður er ekki að vinna eða í skóla eða eitthvað því um líkt:P

En dáldið næs að fara aðeins út aftur og hitta vinina:D Fyrir utan mínar bestu prinsessur:)
Þá er búið að kíkja á næturlífið, keilu og kaffihús svo eitthvað sé nefnt!
Annars er alltaf gaman með minnstu prinsessunni minni og get ég ekki sagt að mér leiðist að vera heima með henni:D hehe...
En á morgun ætlum við að kíkja með Döggu, Kötlu og Eskil í heimsókn til Unnar og Júlíu! LOKSINS!! Er ekki enn búin að sjá nýju íbúðinna þeirra:P Júlía litla orðin ekkert smá stór og stutt í að hún nái frænda sínum8| hehe.. Nadía er líka eitthvað að drífa sig að stækka til að ná þeim:)
Um kvöldið verður síðan stelpukvöld og ætla ég, Jóhanna og Kata að elda okkur gómsætar lambalundir með flottheitum! Eftir matinn má svo fólk koma í heimsókn:P hoho
Ætlum að skeeeeemmta okkur veeel!!! þar sem síðast fór í klessu:S :/

Frá og með helginni fer öll næsta vika í skírnar undirbúning hjá okkur Gumma:D sem verður ansi fróðlegt:P

- well ekki lengra í bili...

~ég og Eskil minn sætasti:*~


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 00:13:20 / alla

HNEIKSLI!!

Sælar,

Á laugardaginn síðasta var Fame að keppa um fyrsta sætið sem þeir því miður töpuðu:( Lentu þó í öðru sem mér finnst frábært:) Við systkinin vorum náttla on FIRE!! þarna í hópi áhorfenda! Hitt liðið var með þetta því líka stuðningslið þannig við bjuggum til okkar eigið, með lúðrablæstri, trommukjuðum, flautu (sem heyrist hátt í!) og öskrum. Geggjuð stemming;)

Eitt sem ég verð að skrifa hérna!! HNEIKSLI DAUÐANS!!! ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég opnaði Vikunna núna síðast! Sé ég þá á forsíðunni Fallegasta barn Íslands samkvæmt barnaland.is!!! Ég á bágt með að trúa þessu en að fólk, þá sérstaklega mæður skuli taka þátt í svona vitleysu!!! Strákurinn sem var kosinn fallegasta barnið var að vissulega sætur! Mamman ljósmyndari og barnið aðal fyrirsætan hennar þannig myndirnar af honum voru mjög flottar. Trúi ekki að það sé verið að kjósa um að eitthvað eitt barn sé fallegra en öll önnur!!! HNEIKSLI!!!

Jæja... laugardagskvöldið kíkti ég í smá keilu með Röggu og fleirum sem var mjög gaman... fórum á smá pöbbarölt eftir keilunna sem ekki verður rætt hér:$ annars var það mjög fínt:)

Nú fer bara nálgast skírnin á litlu dömunni og undirbúningur+stress eru að byrja kitla mann!
Síðan ætlum við Jóa mín í smá afslöppun til DK í nóv:D verst að Kata okkar kemst ekki með:(

tvennt í lokinn.. "Ertu að segja að þú vilt frekar vera með *bíp* heldur en okkur????8|" múhahaha

og myndir af fallegustu prinsessunni:)...

- Later


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 13:02:14 / alla

KF Nörd og fleiria!!

Sælar,

Þar sem ég hef lagt það í vana minn að copy-a textan alltaf þegar ég blogga hefur það komið að góðum notum... nema í dag... urrr.... því það var skiptið sem ég gleymdi því!!

Við Gummi, Oddur og Elín skelltum okkur að sjá Nördanna spila síðasta miðvikudag, menn mishressir:$ En mér fannst þetta fyndið og góð skemmtun:P

og hvað haldiði?!?! ég og kellan mín hún Jóhanna skelltum okkur á línuskauta í gær!! :P Fórum alveg niðrí nauthólsvík og þaðan tilbaka og út í kirkjugarð! Shjit erfitt að fara upp allan garðinn:S Þar hittum við Gumma og Nadíu sem var skvakalega flott klædd! haha, pabbi hennar fékk það verkefni að finna föt og gera allt sjálfur og litla telpan endaði í ÖLLU Liverpool!!! svakalega smart:P hehe
En við stelpurnar fórum þá í smáralind til að tékka á kjólum sem við Jóhanna höfðum orðið ástfangnar af... en við fundum þá ekki aftur.. leituðum og leituðum... gáfumst upp!
Fórum þá á subway, dreymandi um djúsí góðan bát! ó neinei.. ekki til sósan sem ég vildi og skrítið bragð af kjúklingabringunni:frown:
Á leiðinni út hringdi Gummi því við áttum að vera komnar að sækja þá Odd.. svo við drífum okkur af stað en á leiðinni út ákváðum við að spurja um kjólana.. þá höfðu þeir bara verið færðir:P þannig við leitum af okkar kjólum plús það að ég fann mér tvo aðra til að máta.. vegna þess hve mikið við vorum að drífa okkur náði ég ekki að renna upp kjólnum sem ég keypti:P en sem betur fer passaði hann:P Þannig við förum glaðar út:D

Síðan var matarboð hjá Svövu í gær..:) og eftir matinn ætluðum við stelpurnar á kaffihús en Kata var lasin svo við frestuðum því... Þá fékk maður svo sem einn öllara hjá Árna.. Kíkti svo í heimsókn til Jóhönnu þar sem kannski einn í viðbót var drukkin;) Siggi kom líka og heilsaði aðeins uppá okkur.

Ætla fara hafa okkur Nadíu til svo við komumst út einhverntíman... og mynd af prinsessunum í lokinn..:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 00:47:59 / alla

~Kella á Lífi~

Halló Halló! :)
bloggleysi bloggleysi og aftur bloggleysi!! tss... Ætli maður hafi nú ekki annað að hugsa um en að blogga.... ?!?!
Eins og td þetta:

Já hún Nadía mín bjútíkvín!! Draumur í dós!! Svo yndisleg að hálfa væri nóg:D Við Gummi erum heima saman í fæðingarorlofi sem æðislegt! Held það gæti ekki verið betra! Fólk talar um að lokast frá öllu?!? Allavana ekkert sem ég hef kynnst ennþá:) Ekki meðan ég á svona yndislegar vinkonur!! :D

En ætla fara að reyna gera eitthvað við þessa síðu..... ef það er einhverjir þarna... veit um nokkra laumupúka.. góða og slæma:) haha...

-Þangað til seinna


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.07.2006 23:22:48 / alla

Prinsessa fædd:D

Þá er litla prinsessan loksins komin í heiminn:D Ótrúlega sæt og alger gullmoli!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagsetning
23. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti